Greina
dmz leitar að völdum beinum auðkennum í studdum textasendingum. Greining er ófullkomin.
// OPIN CHROMIUM-VIÐBÓT · GPL-3.0-only
dmz er ókeypis, opin Chromium-viðbót frá Garmi. Hún reynir að maska valin bein auðkenni á tækinu þínu. Skoðaðu kóðann, prófaðu með tilbúnum gögnum og hjálpaðu okkur að bæta hana.
Prófunarútgáfa. AI-vefurinn getur séð upprunalegan texta í textareitnum áður en möskun fer fram. Ekki nota viðkvæm gögn.
Arna Jónsdóttir, kt. 140182-8858, óskar eftir tilboði. Skrifaðu svar sem ég get sent á demo@example.com.
⟦NAME-1: XXXXX XXXXX⟧, kt. ⟦KT-2: XXXXX-XXXX⟧, óskar eftir tilboði. Skrifaðu svar sem ég get sent á ⟦EMAIL-3: XXXXX@XXXXX.XXX⟧.
Sæl , takk fyrir fyrirspurnina. Við sendum þér tilboðið á morgun.
Skýringarmynd af fyrirhugaðri virkni; raunveruleg merki hafa líka handahófskennt lotunúmer. Öll gildi eru tilbúin og prófunarkennitölur nota aldarstafinn 8. Vinnandi DMZ-frumgerð er handvirkt hliðarspjald.
dmz leitar að völdum beinum auðkennum í studdum textasendingum. Greining er ófullkomin.
Greindum gildum er skipt út fyrir sýnileg merki. Raungildi og tengitafla haldast á tækinu.
Óbreytt þekkt merki í svörum má endurheimta staðbundið. Endurhleðsla eða hreinsun lotu eyðir tengitöflunni.
Samhengi og auðkenni sem greinast ekki geta enn auðkennt fólk. Viðbótin varar við bilunum og heldur sendingu áfram; viðhengi fara óbreytt.
Lesa um gagnamörk og takmarkanir →Kóði dmz og þessa vefs er gefinn út undir GPL-3.0-only. Þú getur yfirfarið, breytt og dreift honum samkvæmt leyfinu. Ytri gögn og líkön hafa eigin leyfisskilmála; Leyfið veitir ekki sjálfkrafa rétt til þeirra.
Taktu þátt →Nafnagreining · staða þróunar · 05.10.2026
Ný þjálfunarumferð skilaði ekki líkani sem stóðst samanburð við núverandi líkan. Betri heimtur á tilbúnum laga- og fjármálatextum fylgdu lakari heimtur á almennum textum. Fyrra líkanið er því áfram í sérstakri dmz-prófunarútgáfu. Engin almenn útgáfa hefur verið gefin út.
| Mælikvarði | Almennur texti · 5.582 textahlutar | Tilbúnir laga- og fjármálatextar · 256 skjöl |
|---|---|---|
| Textahlutar með öll nöfn rétt | 98,57% | 97,66% |
| Heimtur nafna (recall) | 97,01% | 98,75% |
| Nákvæmni greininga (precision) | 95,55% | 99,37% |
| Nöfn sem vantar | 45 | 6 |
| Rangar greiningar | 68 | 3 |
Markmiðið er að minnsta kosti 99% textahluta með öll auðkenni rétt og 99% heimtur í hverjum meginflokki texta. Það hefur ekki náðst. Óháð staðfesting er enn ólokin.
Textahluti telst aðeins réttur ef öll merkt auðkenni finnast með réttri tegund og nákvæmum mörkum, án aukagreininga. Heimtur mæla hlutfall merktra auðkenna sem finnast. Nákvæmni greininga (precision) er annar mælikvarði: hlutfall greininga sem eru réttar. Taflan metur aðeins nöfn; lokamarkmiðið nær til allra auðkennategunda.
Þetta eru þróunarmælingar eftir ítrekað val á líkönum og stillingum, ekki óháð lokaprófun. Tilbúnu skjölin endurnýta sniðmát og yfirferð merkinga er ólokið. Tölurnar segja ekki til um daglega notkun eða dmz í heild.
ÓKEYPIS NIÐURHAL · ALPHA-PRÓFUN
Þjálfaða útgáfan með staðbundnu nafnalíkani. Engin skráning. Afþjappaðu ZIP-skránni og veldu extension-undirmöppuna með Load unpacked í vafranum.
DMZ Chromium extension · 0.1.3 alpha.3 · 2026-10-27 · Chromium · óundirritaður þróunarpakki
Notaðu tilbúin prófunargögn. Greining getur misst af upplýsingum; við bilun heldur sending áfram með viðvörun. Viðhengi eru send óbreytt. Þetta er ekki útgáfa í Chrome Web Store.
Staðbundin vinnsla: skoðaðu gögnin og prófaðu sjálf →
SHA-256-gildi ZIP-skrárinnar:
6e59e15141a251bee8fb0300acb2ff681bba0d213d744ee264e7a94a4ba66c91